Kvalræði í móðurkviði.

Af einhverjum einkennilegum ástæðum, getur varnarlaust barn í móðurkviði ekki upplifað neitt öryggi, eða einhver réttindi.

Ásæðan er sú að ,,gáfumenni" hafa túlkað lifandi barn í móðurkviði sem eitthvað annað en líf.

Ef þú horfir á köku í ofni sem er ný byrjuð að hitna, og einhver kemur og opnar ofnin og skemmir kökuna, er hann þá ekki sekur um að hafa skemmt köku ?

Ef skógarþröstur flýgur óvart inn í íbúðina þína, getur þú þá aflífað hann að því þú hefur ekki efni á því að fóðra hann ? Hvað þarf mörg skýr dæmi eða dæmisögur, til að fólk fari að vakna ?

not me

 

Fyrir skömmu var sýnt myndband á alþingi þar sem hvalur var í aðahlutverki og atburðarrásin var svo magnþrungin að einhver kona fór grátandi heim.

Er það ekki einkennileg hræsni að kvenkyns ráðamenn sem setja upp svona vídeósýningar, láti sér fátt um finnast þegar vídeó eru sýnd af spriklandi fóstrum í móðurkviði, með tangir um ökkla og hendur ? Tilfinningalíf kvenna hefur ávallt verið flókið fyrirbæri, og verður enn flóknara þegar kona kemst í háar stöður eða embætti. 

hvalur

 

 

 

Eða eru það peningar og frami sem stýrir þeim ? Víða um heim eru dýr að lenda í gildrum, ganga yfir jarðsprengjur og inn á veiðisvæði villimanna og fáar konur virðast nenna að skifta sér að því, enda finnst þeim flestum gott að fá góða steik á ráðstefnum erlendis. Góð alþingiskona ætti að beita sér fyrir því að líf íslendinga sé umvafið öryggi og réttlæti. Að eyða ófæddum börnum og koma villutrúarfólki fyrir á íslandi eyðileggur framtíð íslendinga og líka þessara þingkvenna með einum eða öðrum hætti. Sanniði til !

Bull í barnleysingjum.

 

Barnleysi er val kyrja sumir þessa daganna. En hvað er að vera barnlaus ? Síðuhöfundur spáði nánast ekkert í barneignum, en fór svo ,,óvart" inn í atburðarrás sem leiddi til þess að barn varð til.

Þetta barn grét og þurfti athygli í smá tíma, en oftast veitti það manni gleði og gaf manni eitthvað til að lifa fyrir. Áfengisdrykkja minnkaði töluvert í kjölfarið og skynsemi í fjármálum varð meira áberandi. Börn bæta manninn . . .ekki nokkur spurning ! Mynda albúm verða til, og magnaðar videoupptökur eru orðnar margar sem spilaðar eru við mikla lukku á afmælum og ættarmótum. Börn og barneignir er hluti af eðlilegu samfélagi, og eru fækkanir í samfélögum yfirleitt ekki til bóta. Þá þarf líklega að fylla upp í tóm störf með fólki frá framandi löndum, sem eru lengi að komast inn í störfin, og valda heimamönnum oft talsverðum erfiðleikum vegna tungumálaörðuleika.

Mikið er um að fólk í Reykjavík komi að þjónustu ýmiskonar, þar sem ekkert er hægt að tjá sig nema að enskukunnátta sé nokkuð góð. Og mörg eru tilfellin þar sem fólk er bara að misskilja hvert annað með leiðinlegum afleiðingum.

Já, það er margt gott við það að eignast börn, og konur í húsnæðisvandræðum fá oftar betri lausnir á sínum málum, ef þær hafa fyrir barni eða börnum að sjá. Börnin gleðja ömmur og afa, og gera jól skemmtilegri og skapa stórum hópum vinnu. T.d Kennarar, barnapíur, starfsmenn leikfangaverslana, ljósmyndara, kvikmyndahúsa, og veitingastaða og margt fl. 

Í framtíðinni (sem nálgast okkur hraðar en við stundum höldum) koma börnin í heimsókn þegar okkur leiðist, eða erum á sjúkrahúsi eða elliheimili. Lítum á björtu hliðarnar í stað þess að festa hugann við einstaka bull sem kemur inn á týpiskar fréttasíður, þar sem misgáfulegt fólk er að leita eftir athygli og þykist í leiðinni vera að bjarga heiminum frá ofhitnun.

Fleiri börn eru ekki að fara að ógna lífríki jarðar eða hitastigi, þar sem allir verða komnir á rafmagnsbíla á næsta ári eða hinu, og vindmyllur sjá svo um rafmagn fyrir hús og hýbíli áður en langt um líður.

 

 

Happy-Child-e1486894239397

 


OIP

https://www.visir.is/g/20232419987d/is-lenskar-konur-sem-kjosa-barn-leysi-thad-var-mjog-frelsandi-ad-atta-sig-a-thvi-ad-thetta-vaeri-val-

https://www.mbl.is/born/frettir/2023/06/06/vard_ofrisk_53_ara_eftir_hafa_reynt_i_25_ar/

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband