18.12.2020 | 21:08
Næstu kosningar.
Næstu kosningar á íslandi verða eftir bandarískri fyrirmynd, enda allt flottast og best er þaðan kemur. Það er auðvitað landi og þjóð fyrir bestu að hér stjórni þeir sem eru frekastir og ekki er verra að þeir hafi sambönd við stórþjóðir sem við fyrstu sýn eru vinsamlegar en taka svo alla kökuna ef einhver lítur undan í augnablik.
En auðvitað er nú bara gott að vera í sambandi við svona lönd, því ekki getur litla ræfilslega ísland náð einhverjum árangri svona eitt og sér. Eins og þið sjáið, er landsmönnum það fyrir bestu að láta einhverja risa gleypa allt og stjórna öllu. Við fáum miklu betra verð í elko þegar fram líða stundir, og þurfum svo ekkert að vera að kjósa og setja saman flokka endalaust með engum árangri.
Svo má líka búast við heilsusamlegri matarvenjum þegar líður á öldina (ekki okkar)og þá þurfum við ekki lengur að pína fólk frá framandi löndum sem nemur hér land, til að drattast með okkur í skötuveislur og þorrablót sí og æ. Það er því deginum ljósara að framtíðin er björt og meira en það.
En til að þessi öfl nái nú sem fyrst tökum á landi voru hefur ágætis vél borist til landsins sem gerir íslendingum ókleyft að kjósa "rangt" og er unnið að því hörðum höndum að finna fólk úr "réttum" flokkum til að forrita gripinn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.