Djöfulleg Pláneta.

Þeir sem fylgjast með fréttum þessi misserin, eru meira og minna hissa yfir ákvörðunum ráðamanna heimsins, og þeim kosningaúrslitum sem birtast þeim við og við.

Margir upplifa hlutina eins og satan sjálfur stjórni öllu.

En er það einmitt raunin ?

Biblían segir allavega að satan sé höfðingi þessar jarðar !

Því miður er eins og margir jarðarbúar séu fylgendur hugmyndfræði satans að mestu leiti, og kalli þá sem eru að reyna fylgja orði Guðs, ,,trúarnöttara" ,,öfgafólk"  ,,þröngsýnt"  og fleira óþægilegt.

Sem betur fer eru til menn sem ná að opna augu fólks, og sá besti að mínu mati er Ray Comfort (livingwaters.com)ray C

Ray er stundum að rölta um ströndina, og á örfáum klukkutímum leiðir hann fleira fólk til Jesú, en þjóðkirkjan á 15 árum ! Margir góðir þættir með honum á Y.T endilega tékkið á kallinum. Fáir áhugaverðir predikarar dvelja á íslandi þessa stundina, nema kannski Baldur Freyr sem hefur reyndar látið lítið fyrir sér fara undanfarið, en íslendingar virðast ekki skilja góðar ræður eða ræðumenn enn sem komið er. Held samt að næsti ,,Jeramia" okkar tíma sé samt rétt ókominn ?

Töluvert margir telja að persóna, eða afl sem kallast satan sé varla eitthvað raunverulegt. En gömul upptaka frá árinu 1965 hefur sannfært marga Bandaríkjamenn og líka sjálfann Joe Rogan, um að hann sé eftir allt samann fjandi raunverulegur. Kannski ættir þú nú bara að kíkja á eftirfarandi vedeó ?

 


Bloggfærslur 3. mars 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband