Færsluflokkur: Trúmál

Sannleikurinn / Frelsið

Það er nú gott að sjá að forsetaframbjóðandi vitni í orð krists í bloggi sínu.

En það er ekki þar með sagt að þessi forsetaframbjóðandi geri eitthvað mikið fyrir kristna trú þegar á Bessastaði er komið. En það gæti nú kannski farið svo... vona ég.

 Því miður sér maður að kannanir bendi til þess að kyrfilega kristlaust fólk muni verða kosið af fáfróðnum lýðnum til að taka ákvarðanir af ýmsu tagi fyrir land og þjóð.

Margt hefur gerst í málum er varða kristilegt umhverfi á íslandi undanfarið, og er það varla eitthvað til að hrópa húrra fyrir.

Ef þjóðin telur það gott fyrir land og framtíð þess að kjósa burt kristni úr landinu, verður það brátt land auðbaróna og kúgara.

Kannski eru það í raun  auðbarónar og kúgunarbellir sem eru í raun að afkristna landið, til að auðveldara verði að kúga lýðin og hirða auðlindirnar ?

Biblían hefur allann þann sannleik sem maðurinn þarf til að sjá hverjir munu kúga, og hvernig má losna við kúgun. Hætti lýðurinn að lesa og taka mark á orðinu, verður það leikur einn fyrir kúgarana að taka frelsið frá okkur. Og það fyrr en margann grunar.

Kjósum ekki meir kristlausa og kúgunarlega leiðtoga til að úthluta hagsæld til útvaldra, og auka eymd fátækra. Höldum frelsinu, landinu og stoltinu !

Lengi lifi Island.

A m e n.

 

 

 


Djöfulleg Pláneta.

Þeir sem fylgjast með fréttum þessi misserin, eru meira og minna hissa yfir ákvörðunum ráðamanna heimsins, og þeim kosningaúrslitum sem birtast þeim við og við.

Margir upplifa hlutina eins og satan sjálfur stjórni öllu.

En er það einmitt raunin ?

Biblían segir allavega að satan sé höfðingi þessar jarðar !

Því miður er eins og margir jarðarbúar séu fylgendur hugmyndfræði satans að mestu leiti, og kalli þá sem eru að reyna fylgja orði Guðs, ,,trúarnöttara" ,,öfgafólk"  ,,þröngsýnt"  og fleira óþægilegt.

Sem betur fer eru til menn sem ná að opna augu fólks, og sá besti að mínu mati er Ray Comfort (livingwaters.com)ray C

Ray er stundum að rölta um ströndina, og á örfáum klukkutímum leiðir hann fleira fólk til Jesú, en þjóðkirkjan á 15 árum ! Margir góðir þættir með honum á Y.T endilega tékkið á kallinum. Fáir áhugaverðir predikarar dvelja á íslandi þessa stundina, nema kannski Baldur Freyr sem hefur reyndar látið lítið fyrir sér fara undanfarið, en íslendingar virðast ekki skilja góðar ræður eða ræðumenn enn sem komið er. Held samt að næsti ,,Jeramia" okkar tíma sé samt rétt ókominn ?

Töluvert margir telja að persóna, eða afl sem kallast satan sé varla eitthvað raunverulegt. En gömul upptaka frá árinu 1965 hefur sannfært marga Bandaríkjamenn og líka sjálfann Joe Rogan, um að hann sé eftir allt samann fjandi raunverulegur. Kannski ættir þú nú bara að kíkja á eftirfarandi vedeó ?

 


Tilfinningar Tortímingar

Á þessum einkennilegu tímum ,,siðvæðingar" rétttrúnaðargóðafólksins er ekki úr vegi að minnast þess að sögur liðinna alda staðfesta að lauslæti, fjölkvæni og samkynhneigð samfélaga forðum, leiddi ekki til aukinnar ánægju samfélagana, heldur þvert á móti.

Vísindamenn hafa staðfest hvar borgirnar Sódóma og Gómorra eru, og að mikill hiti tortímdi þeim.

Fjöldi áhugaverðra þátta um málið er um allt netið þessa daganna, en ekki ætla ég að linka á þá, enda er hætta á að bloggið verði kært fyrir hatursorðræðu af samtökum 78 eða álíka ,,rétttrúnaðarhópum"

Í dag snýst allt um tilfinningar og hneigðir, og best er talið af ,,rétttrúnaðargóðafólkinu" að gera allt sem manni finnst, en ekki spá í hvað er manni fyrir bestu.

Þeir sem eru gáfaðir og stíga varlega til jarðar í andlegum efnum, leita í Biblíu til að sjá hvað er þeirra hlutverk sem karl eða kona, og hvernig skal virða líkama og sál.

Þetta svokallaða ,,rétttrúnaðargóðafólk" heldur hinsvegar að orð Biblíunnar sé orðið gamalt og úrelt, en veit það ekki að Guð hefur ekkert breytt neinum stöndördum eða reglum frá tímum Móse.

Refsingar við siðleysi og vanvirðingu á boðorðunum 10 eru enn yfirvofandi, og Guð gefur samfélögum og löndum reglulega ,,tákn" þess efnis að þolinmæði hans sé á þrotum.

Margt sem lesa má í fréttum á íslandi gefur sterklega til kynna, að nú þurfi þjóðin að snúa sér frá trúleysi, siðleysi og innflutningi á andkristnum og heiðnum þjóðarbrotum. Ef ekki fer mjög illa því miður. 

Guð gæti vel komið hrauni yfir Hafnarfjörð, eða Reykjavík ef honum sýndist svo. Eða vilja menn kannski bíða þangað til eitt þorp er eftir á skerinu, og snúa sér þá inn á rétta braut ?

Því miður gæti það orðið raunin, þar sem ríkisstjórn vor er eins langt frá raunkristni og mögulegt er því miður.


Að kvelja barnssálir með söngvum !

viddísFyrir stuttu las ég frétt um góðhjartaða (?) íslenska móður, sem vill börnunum sínum allt það besta. Og hafði hún því miklar áhyggjur yfir því að trúarlegt efni væri sungið í þeim skóla sem börnin hennar stunduðu. Þessi kona hefur sennilega ekki áhyggjur af myglu í skólum, eða ,,uppbyggjandi" hinsegin kynfræðslu, en eyðir þess í stað öllum deginum í áhyggjur yfir kærleiksríkum og uppbyggjandi sálmum og söngvum, sem þvingað er á saklaus skólabörn.

Einu sinni voru börn þvinguð til að taka inn bragðvont lýsi, en seinna meir urðu þau þakklát þeim sem lýsinu tróðu, því það reyndist allra meina bót, og betra en bóluefnasprautur eins og flestir vita í dag ?

Kristilegur boðskapur, söngvar og menning hafa enn sem komið er, ekki valdið eirðarleysi, ahd eða öðrum vandamálum meðal skólabarna eða annara svo vitað sé til.

Hef kannað víða á netinu tengslin á milli andlegs heilbrigðis og iðkun á trú, og engar niðurstöður hafa enn fundist sem sýna einhverja skaðsemi á andlega heilsu skólabarna, heldur það gangstæða. Samt sem áður eru hámenntaðar  ,,mannvitsbrekkur" gargandi og gólandi ef einhver vogar sér með N.T nálægt grunnskólum, eða býður þeim í kirkjuheimsókn. 

Kristni hefur gefið þjóðinni mikið og margt sem fæstir þakka fyrir. En þar má nefna: Jólahátíðina - Páskahátíðina - Frí um Hvítasunnu, uppstigningadag, og vikulegann hvíldardag.

Öll skólabörn taka meira og minna þátt í þessum hátíðum, og engin af þeim þúsundum sem það hafa gert um áratugi, hafa borið einhvern skaða af.

 

video 11nov

Þessi fallega kona hér til hliðar er með ágætis umfjöllun á You Tube um heilsu og trú og sýnir að fallegar konur geta líka verið gáfaðar svona við og við. En það gerist víst sjaldan á íslandi.

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=aOj_HRLYbjM

Sóðaplan satans (SS)

Margir eru uggandi þessa daganna yfir óhugnalegum fréttum, hvort sem þær eru héðan eða þaðan. Margir vilja kenna hlýnun jarðar um alls konar óáran og einnig eiturlyfjum og spilltum stjórmálum.

Margir segja einnig að trúarbrögð, og þá sérstaklega Kristni sé rót alls ills. Kristni er sögð banna ást ( sérstaklega þegar kemur að ást sem er ekki tengd manni og konu ) Kristni er ein og sér tengd Jesú og boðskap hans, og því kann það ekki góðri lukku að stýra þegar ókristið fólk streymir til Kristinna landa. En þegar fólk bendir á það, er það kallað ,,rasistar" og eitthvað verra ef hægt er. Kristni er friðarboðskapur, og friðurinn kemur ekki yfir landið ef fólkið í því kýs að hafa andkristin gildi meðferðis og taka fræðsluna úr skólum !

Þeir sem eitthvað fylgjast með fréttum, vita að það hefur ekki tekist að aðlaga ,,non christians" að Evrópu. Þeir sem fluttu til Evrópu forðum voru að öllum líkindum að finna sér svæði til að búa á í friði í sinni Kristinni trú, þar sem það gekk aldrei upp þarna suður frá.

reading book text

 

 

 

Ísland átti mjög gott færi á því að vera friðsamasta land í heimi um aldir. En það virðist ekki ætla að vera raunin, því miður. En hverjum er um að kenna ? Jú, líklegast er það satan og hans kænsku plan sem hefur hleypt hér öllu upp. Atburðarásin gæti hafa verið eitthvað á þessa leið: 

Aðalfundur satans og fylgismanna hans er haldinn 1955 á ónefndum stað.  Aðalumræðuefni: Eyðing friðar og trúar á íslandi, og aðferðir því tengdu.

Nr. 1: Koma Kristilega sinnuðum karlmönnum í pólitík af þingi.

Nr. 2: Leyfa áfengisútsölur sem víðast, og lauma auglýsingum því tengdu í fjölmiðla, ásamt því að fegra notkun annara vímugjafa með ýmsum hætti.

Nr. 3: Fá fólk til að gleyma boðorðunum 10 og nota trúarleiðtoga landsins til þess. Vottar Jehova leiða þá ,,vakningu"

Nr. 4: Koma auðlindum landsins í hendur auðgræðgismanna, og gera alþýðuna brjálaða af öfund.

Nr. 5: Eyðileggja skal heilbrigðiskerfið með því að segja ekki frá því hvað veldur sjúkdómum, og múta læknum til að ávísa lyfjum í tonnatali sem lækna yfirleitt  ekki neitt.

Nr. 6: Ekki gera hjónum kleyft að vinna fyrir helstu nauðsynjum, svo að skilnaðir verði daglegt brauð, og börnin þeirra enda í ruglinu. Nr. 7: Trúarbrögð önnur en Kristni verði leyfð, svo deilur og árásir magnist upp. Nr. 8: Ritfrelsi skal hefta, svo að sannleikurinn um okkar plan opinberist ekki fyrr en of seint. Nr: 9: Umfjöllun um merki dýrsins má alls ekki fara í fjölmiðla, og þess vegna verður Kristið fólk yfirleitt ekki ráðið til starfa á ,,mainstream" fjölmiðla.in hell with text

 

Nú eru þeir tímar að ganga í hönd að fólk muni skilja,,merki" dýrsins, en það verða víst fáir þar sem prestar vilja lítið um það tala, því annars hætta krónurnar að koma í baukinn segja menn sumir, og einstaka kona líka. En S.S (Sóðaplan satans) hefur því miður náð of langt hér á Íslandi, og því hætt við því að margur saklaus íslendingurinn fá þetta ,,Merki" áður en langt um líður. En þeir sem vilja vita hvað merki dýrsins er, ættu ekki að leita svara á íslandi eins og staðan er núna, og ekki einu sinni hinir umdeildu vottar vita neitt í sinn haus um málið. Eina hugsanlega leiðin sem stendur, til að halda ,,merkinu" frá þjóð vorri, er að passa vel upp á reiðufé. Ef það er tekið af þjóðinni, er hætt við skuggalegu ástandi.

Ef þú heyrir einhvern stjórnmálamasexual prefernn tala um að gera allt samfélagið ,,Cashless" á íslandi, er nokkuð ljóst að hann er líklega ekki á Guðs vegum, eða illa fáfróður.


Kvalræði í móðurkviði.

Af einhverjum einkennilegum ástæðum, getur varnarlaust barn í móðurkviði ekki upplifað neitt öryggi, eða einhver réttindi.

Ásæðan er sú að ,,gáfumenni" hafa túlkað lifandi barn í móðurkviði sem eitthvað annað en líf.

Ef þú horfir á köku í ofni sem er ný byrjuð að hitna, og einhver kemur og opnar ofnin og skemmir kökuna, er hann þá ekki sekur um að hafa skemmt köku ?

Ef skógarþröstur flýgur óvart inn í íbúðina þína, getur þú þá aflífað hann að því þú hefur ekki efni á því að fóðra hann ? Hvað þarf mörg skýr dæmi eða dæmisögur, til að fólk fari að vakna ?

not me

 

Fyrir skömmu var sýnt myndband á alþingi þar sem hvalur var í aðahlutverki og atburðarrásin var svo magnþrungin að einhver kona fór grátandi heim.

Er það ekki einkennileg hræsni að kvenkyns ráðamenn sem setja upp svona vídeósýningar, láti sér fátt um finnast þegar vídeó eru sýnd af spriklandi fóstrum í móðurkviði, með tangir um ökkla og hendur ? Tilfinningalíf kvenna hefur ávallt verið flókið fyrirbæri, og verður enn flóknara þegar kona kemst í háar stöður eða embætti. 

hvalur

 

 

 

Eða eru það peningar og frami sem stýrir þeim ? Víða um heim eru dýr að lenda í gildrum, ganga yfir jarðsprengjur og inn á veiðisvæði villimanna og fáar konur virðast nenna að skifta sér að því, enda finnst þeim flestum gott að fá góða steik á ráðstefnum erlendis. Góð alþingiskona ætti að beita sér fyrir því að líf íslendinga sé umvafið öryggi og réttlæti. Að eyða ófæddum börnum og koma villutrúarfólki fyrir á íslandi eyðileggur framtíð íslendinga og líka þessara þingkvenna með einum eða öðrum hætti. Sanniði til !

Sorg í borg .

Borgir eru af ýmsum gerðum og stærðum. Og þeim fylgir vandamál, sem eru oft á tíðum mjög alvarleg. Sódóma var borg sem hafði algjörlega vanvirt orð og skipanir Drottins, og endaði tilvera hennar með ósköpum.

Einhverra hluta vegna halda margir að Drottinn sé af baki dottinn, og nenni ekki að refsa borgum lengur.

Reykjavík hefur smátt og smátt þróast í átt að ásigkomulagi Sódómu, en fáir gert sér grein fyrir þeim refsingum sem eru ,,in process" og þeim svæsnustu sem enn eru eftir að koma. Það er virkilega þungbært fyrir kristið fólk sem býr í Reykjavík, að skynja það sem er í farvatninu, og engin virðist geta gert öðrum grein fyrir því hvað borgin hefur kallað yfir sig.

trash

 

 

 

 

 

 

 

 

Ef fólk fer ekki að tengja siðleysi við hnignandi afkomu Reykjavíkurborgar, er því miður ekki gott framundan.

 

 

 

 

 

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/07/29/rannsaka_uppruna_lusmys/

Jónas og hvalurinn.

JONAS

A little girl was talking to her teacher about whales. The teacher said it was physically impossible for a whale to swallow a human because even though it was a very large mammal its throat was very small. The little girl stated that Jonah was swallowed by a whale. Irritated, the teacher reiterated that a whale could not swallow a human; it was physically impossible. The little girl said, 'When I get to heaven I will ask Jonah'. The teacher asked, 'What if Jonah went to hell?' The little girl replied, 'Then you ask him'.


Nútíma Faraóar

Red sea crossing

Sögur frá fornum tíma voru oft færðar í letur til að komandi kynslóðir gætu komist hjá því að gera sömu mistök og forfeðurnir gerðu.Þegar ísraelsmenn komust úr 400 ára ánauð með undraverðum hætti, var sagan færð í letur, og vonuðust þeir sem hana skrifuðu að fólk í framtíðinni mundi passa vel upp á það að erlend öfl næðu að þrælka ísraelsmenn aftur. En svo líður tíminn og and-guðleg öfl fara að segja fólki að engin för hafi verið yfir rauðahafið, og einu mennirnir sem gætu kallast ísraelsmenn væru gyðingar.

 

Nú eru ný stökkbreytt afbrigði af faróum að reyna að hneppa íslendinga í þrældóm, sem verður ekki í 400 ár, heldur nær 800 árum. Því miður verður Guð ekki til í það að opna hafið svo íslendingar geti skokkað til Færeyja þegar lífsgæðin hér hafa horfið veg veraldar. Íslendingar höfðu Gamla T. en kunnu ekki að læra af því, og því fer sem fer.

Hér fyrir neðan má sjá mynd af hásingu úr vagni faraós, og fleiri gögn eru til sem sanna að þessi för var ,,for real". Það má ath t.d Ron wyatt myndbönd.

vagnhjol

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband