Bessastaðir og Besti kosturinn !

bessastadirÞegar maður sest niður við áhugaverðar pælingar um frið, stríð og hörmungar er vissulega hugsað til Jesú og boðskap hans. En hann talar óbeint í fjallræðunni um einn ágætan forsetaframbjóðenda á Íslandi, því hann segir; Sælir eru friðflytjendur því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða. Þá má velta fyrir sér hvort að 28 ára friðarhugsjón Ástþórs sé ekki farin að vekja allnokkra athygli hjá Jesú og föður hans? Getur verið að almættið stígi kannski óvænt inn í kosningabaráttuna þetta sinnið, og hristi fram óvænt úrslit eins og við sáum 2016 í Ameríku ? Guð er vissulega höfundur og stjórnandi kraftaverkanna, og ættu menn að hafa það fast í huga, að friðflytjendur og þeirra boðskapur nær í gegn um síðir.

 

Það er svoldið erfitt að trúa því (Ef kannanir eru eitthvað marktækar ?) að fólk kjósi sér engann ,,friðarhöfðingja" á Bessastaði á tímum sem þessum.

 

Boðskapur Biblíunnar er á undanhaldi, og fólk eltist sí og æ við eitthvað pjáturs og puntfólk sem hefur líklegast enga reynslu eða þekkingu sem þarf. Og hrökklast líklega úr embætti eða landi þegar heimsmálin verða einum of röff.

Við þurfum ekkert að lesa lengi í G.T til að átta okkur á því hvaða frambjóðendur munu kalla eymd og hörmungar yfir þjóðina, en vonandi er enn tími til að vara við, og senda nýjan ,,Jeramía" út í samfélagið og bjarga landi voru frá reiði Drottins.

Vonandi fer einhverskonar ,,Jeramía" á Bessastaði og vekji loks þjóðina til umhugsunar um velferð Íslands, og passi vel upp á hvað er skrifað undir og hvað ekki.

Icesave var gott dæmi til að hrista upp í sofandi íslendingum, og vonandi eru þeir enn vel vakandi og ekki búnir að gleyma hve kostnaður hefði orðið á hvert mannsbarn næstu 100 og eitthvað árin.

Áfram Ástþór 2024 !

 

 

 


Bloggfærslur 10. apríl 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband